Pulsusalarnir og Vélmennin

miðvikudagur, janúar 03, 2007

Afmæli

Hæ og gleðilegt nýtt ár allir!
Ætla að halda afmælisparty á föstudaginn 5. jan þar sem ég er að verða ofboðslega gömul;)
Mæting upp úr 9 á Neshaga 10, 3. hæð. Endilega látið sjá ykkur ef þið hafið tíma, veit að það eru margir farnir út en það er langt síðan við höfum öll hist.
Kv. Ásdís

föstudagur, desember 29, 2006

Hittingur

Það verður ekki hittingur í Þingásnum þetta árið.
kv ÞS

þriðjudagur, desember 26, 2006

Við gætum...

verið heima hjá mér 29.des, þeir sem hafa áhuga tilkynni það. Ég hef ekki boðið neinum til mín nema þeim sem skoða þessa síðu og því mikilvægt að menn boði komu sína ef þeir hafa áhuga, því ég nenni ekki að hafa hitting fyrir mjög fáa. Ég ákveð á morgun hvort það verður af þessu út frá tilkynningum á síðunni.
Kv Þorsteinn

laugardagur, desember 16, 2006

Jólafrí?

Er opinber hittingur um jólin?
Ef svo er, hvar og hvenær þá?

miðvikudagur, ágúst 16, 2006

Fótboltaáhugamenn sameinist

Ég stofnaði deild í fantasy.premierleague.com og ef fólk (verkfræðifólk) vill taka þátt þá þarf það bara að búa til lið fyrir 19. ágúst og join-a deildina. Kóðinn sem slá þarf inn er 613135-93520.

sunnudagur, ágúst 13, 2006

Partý

Sæl

Í tilefni þess að ég er að fara út í nám hef ég ákveðið að halda kveðjupartý næsta laugardagskvöld 19.08.06. Býst við að sjá ykkur blindfull og kolrugluð. Mæting uppúr 2100, Þingás 41.

Kveðja Þorsteinn S

mánudagur, júlí 24, 2006

Hver verður hvar að gera hvað...

Sæl öllsömul,

Mér datt í hug að það gæti verið sniðugt að setja færslu þar sem allir gætu kommentað um hvar þeir verða næsta vetur og hvað þeir ætla að vera gera. Það er alltaf svo gaman að frétta af bekkjarfélögum sínum :)

Ég skal byrja,
Kær kveðja,
Hidda